Bloggsíða 3.flokks karla.

Tilkynningarsíða 3.flokks karla.

21.12.2011 09:35:24 / Eiður

Þorrafagnaður ÍR...

Sælir ÍR ingar!

 

Nú er komið að því sem allir hafa beðið eftir.......Þorrafagnaður ÍR í janúar.

Þetta verður stærðarinnar hátíð og ætlum við að taka höndum saman, ÍR ingar sem og aðrir sem tengjast hverfinu, og hafa gríðarlega gaman. Hvetjum við ykkur að smala saman vinum úr félagin eða brottfluttum og koma og gleðjast saman, eitthvað er um að fólk bjóði í heimahús í hverfinu og rölti sér svo á samkomuna.

Verðinu er haldið í lágmarki en til þess þurfum við mikinn fjölda fólks. Athugið að maturinn verður mjög fjölbreyttur og vel úti látinn og íþróttahús Seljaskóla verður sett í veislubúning þennan dag.....mjög skemmtileg tilbreyting.

Nú er um að gera að kaupa miða, en miðasala er hafin á www.ir.is (kreditkort). Miðar verða svo seldir á skrifstofu ÍR og Noon&Súper Sól í Hólmaseli fljótlega í næstu viku.

Það er um að gera að koma miðanum í jólapakkann, hvað annað :-)

Athugið að það er 18 ára aldurstakmark.

 

Description: cid:image005.jpg@01CCBC0F.5C3F37C0

 


» 0 hafa sagt sína skoðun

08.12.2011 16:52:08 / Eiður

Fótboltafjör á laugardag / Iðkendur vs Foreldrar.

Fótboltafjör verður haldið í Seljaskóla laugardaginn 10. desember næstkomandi fyrir iðkendur í 8-5. flokk karla og kvenna. Við hvetjum alla til að mæta. Hver aldurshópur í yngriflokkum kemur á þeim tímum sem eru auglýstir hér í fylgiskjali. Klikkið á fótboltafjör og þá sjáið þið dagskránna. Allir iðkendur eiga að taka pabba og mömmu með. Iðkendur flokkana ætla að spila fótbolta við foreldra. Aðrir fjölskyldumeðlimir eru alltaf velkomnir og auðvitað amma og afi. 


Við hvetjum einnig eldri iðkendur og foreldra þeirra til að koma og kíkja við. Meistaraflokkar félagsins verða með kaffibasar og jólagjafamarkað.


Viljum bara sjá sem flesta. 


» 5 hafa sagt sína skoðun

25.10.2011 19:41:16 / Eiður

Skemmtikvöld fyrir foreldra.

Kæruforeldrar og velunnarar knattspyrnudeildar ÍR !! Skemmtikvöld knattspyrnudeildarinnar verður haldið í ÍR heimilinu föstudagskvöldið 4. nóvember og hefst fjörið klukkan 20:00 ogstendur yfir fram eftir nóttu. –síðast var MIKIÐ fjör – þetta kvöld verður ekki síðra!! Léttarveitingar verða til sölu: Happdrætti með frábærum vinningum, meðal annars frá: Fiskbúð Hólmgeirs, Tapas barnum, Þínverslun, Bakarameistaranum, Borgarleikhúsinu og margir fleiri flottir vinningar. Posi á staðnum: Enginn aðgangseyrir: Síðast en ekki síst þá ætlar þú ætlar að mæta ásamt öllum hinum. Látið þennan viðburð ekki fram hjá ykkur fara. FÖSTUDAGURINN 4. NÓVEMBER KLUKKAN 20:00 Kveðja Nefndin.

» 3 hafa sagt sína skoðun

18.10.2011 00:05:09 / Eiður

Foreldrafundur fimmtudaginn 20 október 2011

Kæru foreldrar/forráðamenn. Fimmtudaginn 20. október mun 3. flokkur karla vera með foreldrafund í ÍR-heimili kl 18:30. Hvetjum alla foreldra til að mæta og kynna sér starfsemi flokksins á komandi ári. Með kveðju Knattspyrnudeild ÍR.

» 3 hafa sagt sína skoðun

03.10.2011 00:04:04 / Eiður

Æfingar að HEFJAST.

Kæru foreldar/forráðamenn iðkenda hjá knattspyrnudeild ÍR.



Mánudaginn 3. október næstkomandi munu æfingar hefjast hjá knattspyrnudeild ÍR. Við höfum loks náð að manna allar þjálfarastöður og erum nú í þessum töluðum orðum að setja á æfingartíma hjá 3. og 4. flokki kvenna. Allir aðrir flokkar voru komnir með æfingatíma og voru þeir auglýstir strax um leið og þeir voru klárir. Tveir nýir þjálfarar taka til starfa hjá knattspyrnudeildinni en þeir verða Bjarni Víðir Pálmason og Brynjar Óli Guðmundsson. Bjarni Víðir mun þjálfa 3. og 7. flokk kvenna en Brynjar Óli tekur við þjálfun 4. flokks



Nokkrar breytingar verða á þjálfarateymi deildarinnar þetta árið en við erum sannfærð um að þær breytingar eigi eftir að koma félaginu og iðkendum til góða. Allir þjálfarar uppfylla skilyrði U.E.F.A og KSÍ um menntun þjálfara og því teljum við okkur bjóða uppá vel menntaða þjálfara og metnaðarfullt starf líkt og síðustu ár. Eins og áður hefur komið fram þá mun samstarf ÍR og Leiknis í kvennaflokkum hefjast formlega á mánudag en félögin tvö eru sannfærð um að það muni einungis efla kvennastarf félagana. Til þess að þetta verkefni takist þá biðjum við foreldra og forráðamenn að aðstoða okkur við margvísleg foreldrastörf í flokkunum og halda vel utan um starfið í samstarfi við þjálfara deildarinnar. Við erum viss um að fjöldi iðkenda í kvennaflokkunum á eftir að aukast og öll umgjörð í kringum kvennaknattspyrnu eigi eftir að vaxa og dafna á komandi árum. Þar með munum við eignast fleiri leiknari ÍR-stelpur í komandi framtíð og eldri flokkar líkt og 3. og 4. flokkur þurfa ekki að strögla við að ná í lið eins og staðreyndin hefur verið síðustu ár hjá báðum félögum. Nánari upplýsingar um samstarfið verður rætt á foreldrafundum flokkana í enda október.



Uppskeruhátíð yngri flokka var haldin laugardaginn 17. september en þar var öllum iðkendum afhent liðsmynd til eignar. Einhverjir iðkendur misstu af hátíðinni og þeir sem fengu ekki myndina geta fengið hana hjá Dóra eftir helgi. Einnig er hægt að óska eftir að fá myndina senda á vefpósti ef einhverjr vilja prenta þær út í betri gæðum heima. Vinsamlegast sendið þá vefpóst á irknattspyrna@hotmail.com



Hér er hægt að sjá liðsmyndir af öllum flokkum: http://www.ir.is/Deildir/Knattspyrna/MYNDASAFN/





SKRÁNING IÐKANDA FYRIR NÝTT ÆFINGATÍMABIL – ATH. MJÖG MIKILVÆGT AÐ KLÁRA SEM FYRST.



Félagið er að taka í notkun nýtt skráningarkerfi og því verða allir forráðamenn að skrá börn sín og ganga um leið frá greiðslu æfingagjalda. Skráning fer ekki í gegnum þjálfara. Hér er slóðin inn á skráningarvefinn https://ir.felog.is og í meðfylgjandi pdf skjali eru leiðbeiningar (smellið HÉR til að nálgast skjalið). Kerfið er samtengt Rafrænni Reykjavík og því er mjög auðvelt að ráðstafa styrknum á sama tíma, sem svo dregst frá heildarupphæðinni. Kerfið býður uppá að geta skipt upp kreditkortagreiðslu á nokkur tímabil, allt eftir upphæð æfingagjalda. Ef greiða þarf með öðrum hætti þarf viðkomandi að koma á skrifstofu ÍR á skrifstofutíma kl.10:00-16:00. Þeir sem þurfa aðstoð við skráningu eða vilja greiða með öðrum hætti, bendum við á skrifstofu á 2.hæð ÍR heimilis að Skógarseli.



Þjálfarar flokkana verða eftirfarandi og allar upplýsingar um hvern flokk eru settar inn á bloggsíður flokkana. Upplýsingar um þjálfara og æfingar er hægt að sjá á http://www.ir.is/Deildir/Knattspyrna/Yngriflokkar/



KARLA FLOKKAR.



3.flokkur karla – www.3flokkurir.blogcentral.is

Eiður Ottó Bjarnason og Engilbert Friðfinnson.



4. flokkur karla – www.4.flokkurir.blogcentral.is

Halldór Þ. Halldórsson og Óli Halldór Sigurjónsson.



5. flokkur karla – www.5flokkurir.blogcentral.is

Halldór Þ. Halldórsson og Heimir Berg Halldórsson.



6. flokkur karla – www.6flokkurir.blogcentral.is

Óli Halldór Sigurjónsson, Halldór Hrannar Halldórsson.



7. flokkur karla – www.7flokkurir.blogcentral.is

Árni Guðmundsson, Jóhann Ingi Hjaltasson og Daníel Þór Steinsson.



8.flokkur karla og kvenna – www.8flokkurir.blogcentral.is

Halldór Þ. Halldórsson og Ivana Anna Nicolic.

Aðrir sem munu koma að æfingum 8., 7. og 6. flokks karla

Heimir Berg Halldórsson, Ísleifur Gissurarsson, Reynir Haraldsson og Jón Ágúst Engilbertsson.





KVENNAFLOKKAR



3. flokkur kvenna - www.irstelpur3.blogcentral.is

Bjarni Víðir Pálmason.

4. flokkur kvenna - www.irstelpur4.blogcentral.is

Brynjar Óli Guðmundsson.



5.flokkur kvenna - www.irstelpur5.blogcentral.is

Bryndís Jóhannesdóttir.



6.flokkur kvenna - www.irstelpur6.blogcentral.is

Tanja Nicolic og Ívana Anna Nicolic.



7. flokkur kvenna - www.irstelpur7.blogcentral.is

Bjarni Víðir Pálmasson.


» 4 hafa sagt sína skoðun

16.09.2011 21:01:24 / Eiður

Uppskeruhátíð.

SVO EKKERT FARI Á MILLI MÁLA ÞÁ VERÐUR UPPSKERUHÁTÍÐ YNGRI FLOKKA HALDIN Á MORGUN LAUGARDAGINN 17. SEPTEMBER KL 14:30 í SELJASKÓLA.

ATH eldri keppnistreyjur verða til sölu á 1000kr og allur hagnaður af þeim rennur til reksturs barna og unglingaráðs Íþróttafélags Reykjavíkur.

ALLIR AÐ MÆTA.

SJÁUMST ÞAR


» 3 hafa sagt sína skoðun

05.09.2011 11:08:41 / Eiður

ÍSLAND - KÝPUR.

KSÍ hefur ákveðið að bjóða yngri iðkendum aðildarfélaga sinna, ókeypis aðgang að landsleik Íslands og Kýpur í undankeppni EM sem fram fer á Laugardalsvelli þriðjudaginn 6. september kl. 18:45.

Þeir sem vilja geta fengið miða á leikinn með því að senda tölvupóst á irknattspyrna@hotmail.com eða senda sms á 8916320. Miðarnir verða afhentir á æfingum í  dag 5.sept. og á morgun 6.september.

> >

Með knattspyrnukveðjum Halldór Þ. Halldórsson.


» 3 hafa sagt sína skoðun

01.09.2011 00:10:03 / Eiður

LEIKUR MEISTARAFLOKKS KARLA VIÐ ÞRÓTT.

Meistaraflokkur karla mun keppa á morgun fimmtudaginn 1.september við Þrótt Reykjavík.  Leikurinn mun fara fram á Valbjarnarvelli kl 18:30.


Við hvetjum alla til að mæta og styðja við bakið á strákunum. Við hjá Barna og unglingaráði vitum hversu mikilvægt það er fyrir meistaraflokk karla að halda sæti sínu  í 1.deild karla. Því óskum við eftir því að allir iðkendur, foreldar og forráðamenn mæti á VALBJARNARVÖLL til að styðja við bakið á strákunum. 


Minnum alla á að mæta í BLÁU eða HVÍTU, eða bara bláu og hvítu.


Með knattspyrnukveðjum.

» 3 hafa sagt sína skoðun

29.08.2011 23:47:24 / Eiður

SEPTEMBER ÆFINGAR. Hefjast eftir næstu helgi....

Knattspyrnudeild ÍR >>

> >

Kæru foreldrar/forráðamenn og iðkendur.>>

 >>

SEPTEMBER ÆFINGAR 2011>>

> >

Líkt og síðustu ár þá breytast æfingar hjá öllum flokkum í september. Það verða einungis tvær æfingar í viku frá 5. september til og með 16.september. Þjálfarar flokkana verða í fríi og Halldór Þ. Halldórsson yfirþjálfari mun ásamt aðstoðarmönnum flokkanna stjórna æfingum þessar tvær vikur. Þann 17.september kl 13:00 verður uppskeruhátíð knattspyrnudeildar ÍR haldin og því viljum við biðja alla iðkendur um að taka daginn frá. Staðsetning verður auglýst síðar. >>

Eftir uppskeruhátiðina verður frí hjá öllum iðkendum knattspyrnudeildarinnar til og með 02.október. Við hefjum svo nýtt starfsár 3.október og iðkendur sem núna eru á eldra ári færast upp í næsta flokk. Æfingatöflur fyrir komandi starfsár verða vonandi klárar í næstu viku. Við ætluðum að gefa hana út í síðustu viku en því miður þá breyttust allar forsendur þegar ÍTR og ÍBR takmarkaði tímaúthlutun innanhússtíma á síðustu stundu. Við munum gefa töfluna út strax og við getum.  >>

> >

Æfingar flokksins í september verða sem hér segir: >>

 

3.flokkur karla.  Árg 95-96>>

Mánu- og miðvikudögum kl 18:15 til 19:30 >>

> >

MEÐ KNATTSPYRNUKVEÐJUM >>

ÁFRAM ÍR>>


» 3 hafa sagt sína skoðun

14.07.2011 14:39:45 / Eiður

Sælir

Það verður ekki æfing í dag fimmtudag. ÞAð verður æfing á morgun föstudag kl 16:30.

sjáumst á morgun

kv Eiður og Kiddi

» 26 hafa sagt sína skoðun

06.07.2011 16:49:00 / Eiður

Reykjavíkurmaraþon / Málefni vert að skoða!

Kæru ÍR-ingar,

Nú er komið að skráningu fyrir Reykjavíkurmaraþonið.

Alternating Hemiplegia of Childhood samtökin eru skráð á Hlaupastyrk en systir mín, Sunna Valdís, er eini einstaklingurinn á Íslandi með þennan ólæknandi sjúkdóm.

Ég hvet þá sem hafa ætlað sér að hlaupa maraþonið að skrá sig sem hlaupara fyrir AHC samtökin. Ef þið ætlið ekki að hlaupa þá er alltaf hægt að heita á einhvern hlauparann sem hleypur fyrir samtökin okkar en samtökin þurfa virkilega á fjármagni að halda svo hægt sé að halda uppi kynningu og rannsóknum á þessum sjaldgæfa taugasjúkdómi.

Frekari upplýsingar um Alternating Hemiplegia er að finna á www.ahc.is

Allir sem hlaupa fyrir AHC samtökin fá bol merktan samtökunum til að hlaupa í. Eina sem þarf að gera er að senda upplýsingar um hlaupara og stærð á bol á ">ivira@internet.is">sivira@internet.is

Áheitavefurinn www.hlaupastyrkur.iser mjög einfaldur og notendavænn. Hlauparar sem vilja safna áheitum á vefnum þurfa að byrja á því að skrá sig í hlaupið á www.marathon.is/reykjavikurmaraton. Síðan skrá þeir sig inná www.hlaupastyrkur.isþar sem hægt er að setja inn myndir, hvetja vini og vandamenn til að heita á sig o.fl. Hver sem er getur heitið á skráða hlaupara á www.hlaupastyrkur.is. Hægt er að greiða áheit með kreditkorti eða með því að senda sms skilaboð.

Kveðja

Viktor Snær (5 flokki).


» 25 hafa sagt sína skoðun

25.06.2011 15:38:43 / Eiður

Sælir

Mæting hjá B-hóp á morgun kl 11:30.
Andri, Hrannar, Arnar, róbert, Fjalar, Ásgeir, Eiður Logi, Hans, Jón Ágúst, Jón Breki, Þórður, Birkir, Kristján( ef hann verður komin í bæinn), Einnig koma 3 frá 4.flokki.

mæting hjá A-hóp kl 13:00.
Helgi, Aron, Maggi, Benni, Adam, Reynir, Danni, Stebbi, Kamil, Hilmir, Jakub.

Ef ég hef gleymt einhverjum þá hafið þið samband.

kv Eiður og Kiddi.

» 20 hafa sagt sína skoðun

19.06.2011 14:00:06 / Eiður

Vikan

Vikan
Mánudagur; æfing kl 16:30
Þriðjudagur: æfing kl 16:30
Miðvikudagur: Frí
Fimmtudagur: æfing kl 16:30
Föstudagur: Leikur gegn IBV. eins og ég sagði við ykkur þá ætla ég að reyna færa hann yfir á laugardaginn.

Þetta kemur í ljós í vikunni.


kv Eiður og Kiddi

» 25 hafa sagt sína skoðun

17.06.2011 02:33:37 / Eiður

17. júní Sölubás meistaraflokkskvenna.

Hæ hó jibbí jéi....

Meistaraflokkur kvenna í knattspyrnu verður með sölubás 17. júní fyrir neðan Menntaskólann í Reykjavík og hlakkar til að hitta alla ÍR - inga þar.

Við verðum með helíumblöðrur, gos, sælgæti og góða skapið allan daginn.

Gleðilega hátíð...


» 25 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 50
Klukkan
Dagatal
Heimsóknir
Í dag:  27  Alls: 246798
Könnun
Hversu stórt páskaegg færðu ?









Reykjarvíkurmót 2010
Íslandsmót 2010